Íslandsmeistaramót Gi 2026
· Reykjavík, Iceland
- Registration
- Open Closes Nov 18, 2026
- Closed Nov 18, 2026
- Fee
- Fee not listed
- Format
- Gi
- Venue
- ÁrmannOpen in OpenStreetMap
Registration
You are leaving bjjtournaments.net. Registration is hosted by smoothcomp.com

Key dates
Registration dates are shown in UTC. Confirm local deadlines on the official site. Local time zone: Greenwich Mean Time.
- Registration closes Passed
- Tournament
From the organizer
Copied from the official event page. The official page has the final word.
About
Íslandsmeistaramót í Gi 2026 verður haldið sunnudaginn 22. nóvember í Ármanni
More event details
Íslandsmeistaramót í brasilísku jiu jitsu í galla (Gi) fer fram sunnudaginn 22. nóvember í Ármannsheimilinu, Engjavegi 7 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 8 og vigtun keppenda í barna- og unglingaflokkum hefst kl. 8:15 og mótið sjálft hefst kl. 9. Mótið er ætlað keppendum á öllum aldri og skiptist það niður í þyngdar- og aldursflokka hjá börnum og unglingum, og þyngdar- og getuflokka hjá fullorðnum.
Barna- og unglingamót hefst kl. 9:00
Athygli er vakin á því að mótshaldarar gefa sér frelsi til að sameina flokka, bæði eftir aldri og þyngd, ef einhverjir flokkar reynast of fámennir. Alltaf verður reynt að sameina flokka á sem sanngjarnastan hátt.
ATH: Forráðamaður verður að skrá barn eða samþykkja skráningu.
Rules
Börn og unglingar keppa í þyngdarflokkum IBJJF í galla (Gi). Tveir árgangar eru saman í hverjum aldursflokki og þar gildir þyngdartafla IBJJF fyrir eldri árganginn. Vigtað er í galla. Drengir og stúlkur hafa sömu þyngdarflokka upp að 15 ára aldri. Ekki er skipt eftir beltum hjá börnum og unglingum.
Stuðst er í einu og öllu við reglubók IBJJF, með eftirfarandi undantekningum:
Reiknað er með að fullorðinsflokkarnir byrji um kl. 11. Enginn reglufundur verður fyrir keppendur og er ætlast til að þjálfarar og keppendur kynni sér reglur sjálfir fyrir mót. Keppt verður eftir reglum IBJJF í galla (Gi) og er hægt að kynna sér þær hér að neðan. Ætlast er til að keppendur mæti í vigtun að minnsta kosti 60 mínútum fyrir fyrstu glímu í sínum flokki. Vigtað er í galla.
Í ár er mótinu skipt í þrjá getuflokka: Byrjendaflokk (hvít belti), framhaldsflokk (blá belti) og úrvalsflokk (fjólublá, brún og svört belti)
Að venju verða aðeins tveir opnir flokkar: opinn flokkur kvenna og opinn flokkur karla. Allir geta skráð sig í opnu flokkana, óháð beltalit og þyngd, en þeir sem keppa í úrvalsflokki og sigurvegarar hvers flokks njóta forgangs.
Athygli er vakin á því að mótshaldarar gefa sér frelsi til að sameina flokka, bæði eftir þyngd og beltalit, ef einhverjir flokkar reynast of fámennir. Alltaf verður reynt að sameina flokka á sem sanngjarnastan hátt.
Stuðst er í einu og öllu við reglubók IBJJF, með eftirfarandi undantekningum:
- Í úrvalsflokki (fjólublátt, brúnt og svart belti) gilda IBJJF reglur svartbeltinga